    <language>is</language>
Vörumerking
Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.
Sigurplast var stofnað árið 1960 og hefur um áratuga skeið sérhæft sig í framleiðslu á blásnum PET- og HDPE-flöskum. Með sameiningu Sigurplasts við Vörumerkingu skapast sterkari rekstrargrundvöllur, aukin stærðarhagkvæmni og ný tækifæri til uppbyggingar og vaxtar.]]></description>
Jafnlaunastefna Vörumerkingar
Vörumerking nýtt logo
Vörumerking nýtt logo
Allt er breytingum háð. Ein af breytingum sem félög og fyrirtæki ráðast í eru vörumerki eða lógó sinna félaga og nú er komið að slíkum breytingum hjá okkur í Vörumerkingu. Þannig fær Vörumerking nú nýtt og uppfært lógó sem unnið var í góðu samstarfi við hönnunarstofuna Jökulá. Breyting sem við hjá Vörumerkingu erum afar sátt við og er um leið nauðsynleg uppfærsla upp á skalanleika að gera gagnvart öllum tækjum og tólum nútímans. Við höldum fast í bláa litinn okkar sem og V-ið góða í Vörumerkingu sem hefur verið mjög sterkt lógó í áranna rás. Þess má geta að Vörumerking var stofnað árið 1962 og verður 60 ára á árinu. Nýtt lógó Vörumerkingar lítur svona út:  ]]></description>
Óbreytt útlit á mörkuðum 2022, enn mikið ójafnvægi
      <description><![CDATA[Ágæti viðskiptavinur
Líkt og við höfum áður komið inn á, bæði í samtali við ykkur sem og í okkar fréttafærslum, þá hafa átt sér stað miklar verðbreytingar á árinu 2021. Þessar verðbreytingar eiga rætur sínar að rekja til afleiðinga heimsfaraldursins þ.e. skortur á hrávöru sem leiddi af sér miklar hækkanir á hrávöruverði. Aðstæður sem eru fordæmalausar (force majeure) og ástand sem við höfum hvorki séð fyrir né upplifað áður. Því miður er það svo að ekki er útlit fyrir að framboð á mörkuðum nái jafnvægi við eftirspurn núna í ár. Óhjákvæmileg afleiðing þessa ástands er áframhaldandi hækkandi vöruverð. Vissulega mismunandi eftir vöruflokkum og eðli þeirra, samanber mikil þróun yfir í pappa, hækkun í plasti og tafir jafnvel skortur á áli og reyndar lengri afgreiðslutímar í öllum vöruflokkum sem kallar á meiri fyrirvara pantanna.]]></description>
Miklar hækkanir vegna ástands á hrávörumarkaði hafa komið á daginn
Þróunin á hrávörumarkaði á undanförnum mánuðum hefur falið í sér töluverðar kostnaðarhækkanir og í mörgum tilfellum farið fram úr verstu spám. Þannig hafa hækkanir verið að berast okkur vikulega frá okkar fjölmörgu birgjum og höfum við óhjákvæmilega þurft færa þær hækkanir út í verðið á okkar vörum. Því miður er ekki séð fyrir endann á þessari þróun og þörf á reglulegri endurskoðun meðan að þetta ástand varir. Fjölmargir flokkar hafa hækkað verulega vegna skorts á hrávöru og hækkunar á flutningum, svo sem plast, pappír, ál einnig aðrir hrávöruflokkar eins og olíu, timbur, stál, og gler svo nokkrir hrávöruflokkar séu nefndir.]]></description>