Fréttir

Vörumerking á IceFish 2026

Vörumerking tekur þátt í sjávarútvegssýningunni IceFish 2026, sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september 2026.

Á sýningunni kynnir Vörumerking fjölbreyttar merkingarlausnir fyrir sjávarútveg og fiskeldi sem styðja við rekjanleika, skilvirkni og gæði í framleiðslu og pökkun sjávarafurða.

Vörumerking leggur ríka áherslu á hraða, sveigjanlega og áreiðanlega þjónustu og vinnur náið með viðskiptavinum að því að finna lausnir sem henta hverju verkefni. Hvort sem um er að ræða daglegar merkingarþarfir eða sérhæfðar lausnir, er markmiðið ávallt að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.

Á IceFish verður Vörumerking á sameiginlegum bás með Samhentum og Formum, þar sem gestir geta einnig kynnt sér heildarlausnir Samhenta fyrir sjávarútveg og matvælaframleiðslu, þar á meðal umbúðir, pökkunarvélar, vélbúnað, sjálfvirknilausnir og EPS-fiskikassa.

Við hlökkum til að taka á móti gestum á bás F-20.
Sjáumst á IceFish 2026!


Svæði

Vörumerking ehf.  |  Suðurhraun 6a  |  210 Garðabæ  |  Sími: +354 414 2500  |  Fax: +354 575 8001  |  vorumerking@vorumerking.is