Fréttir

Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.

Vörumerking hefur tekið yfir rekstur Sigurplasts frá og með 1. janúar 2026.

Sigurplast var stofnað árið 1960 og hefur um áratuga skeið sérhæft sig í framleiðslu á blásnum PET- og HDPE-flöskum. Með sameiningu Sigurplasts við Vörumerkingu skapast sterkari rekstrargrundvöllur, aukin stærðarhagkvæmni og ný tækifæri til uppbyggingar og vaxtar.

Fyrirhugað er að flytja starfsemina í nýja og nútímalega framleiðsluaðstöðu, þar sem áhersla verður lögð á aukin gæði, öfluga framleiðslu og áframhaldandi framþróun.

Vörumerking er BRC-vottað fyrirtæki og er framtíðarsýn að Sigurplast fari í sambærilega gæðavottun.

Allir reikningar vegna Sigurplasts verða hér eftir gefnir út af Vörumerkingu, kt 560771-0109.

Fyrir frekari upplýsingar:
Páll Elísson – palli@vorumerking.is


Svæði

Vörumerking ehf.  |  Suðurhraun 6a  |  210 Garðabæ  |  Sími: +354 414 2500  |  Fax: +354 575 8001  |  vorumerking@vorumerking.is