Fréttir

Íslenskt - gjörið svo vel

Vörumerking fagnar mjög og tekur heilshugar undir með forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessyni ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu og Bændasamtökum Íslands sem standa að átakinu Íslenskt – gjörið svo vel! Átakið hófst í Bónus í Garðabæ sunnudaginn 7. apríl þar sem forsetin sagði meðal annars þetta: „Auðvitað erum við í þannig samfélagi að við flytjum inn og við flytjum út og allt í góðu með það. En ég held að það sé sjálfsagt að við reynum að hugsa aðeins um það sem við gerum vel hér heima, það sem við framleiðum hér. Það er gott fyrir okkur sjálf, okkar efnahag og það er gott fyrir umhverfið líka - að fara ekki yfir lækinn að sækja vatnið ef svo má segja. Þannig að með þessum hætti legg ég mitt litla lóð á vogarskálarnar.“ (Tilvitnun: http://www.ruv.is/frett/gudni-hitti-mommu-sina-fyrir-tilviljun-i-bonus)

Vörumerking ehf er íslenskt framleiðslufyrirtæki í prentiðnaði sem sérhæfir sig í framleiðslu límmiða, állok og álfilmur, áprentuðum pökkunarfilmum, stafrænni prentun, plastkort, aðgöngumiðum og brottfaraspjöldum. Allar þessar vörur eru framleiddar nýjum og nýlegum tækikosti Vörumerkingar til að tryggja bestu fáanlegu gæði á Íslandi. Þá má geta þess að Vörumerking er á leiðinni í BRC gæðavottun á næstu misserum sem mun koma sér einkar vel fyrir þau fjölmörgu matvælafyrirtæki sem Vörumerking starfar fyrir! 

Vörumerking leggur mjög mikla áherslu á góða þjónustu til viðskiptavina enda höfum hvarvetna hlotið lof fyrir okkar þjónustu, framleiðslu og áreiðanleika. Þetta veitir síðan viðskiptavinum okkar tækifæri til bregðast við með skömmum fyrirvara í sínu markaðsstarfi. Á sama tíma hefur okkur hjá Vörumerkingu einnig tekist að vinna með okkar viðskiptavinum að góðri áætlanagerð (prógram) sem síðan veitir okkar viðskiptavinum jafnara flæði yfir árið í gegnum þeirra vertíðir. Allt þetta framkallast í auknum sýni- og glæsileika vörunnar með góðu þjónustuviðbragði, viðskiptavinum til mikilla hagsbóta. Það er því ekki að ástæðulausu sem við hjá Vörumerkingu segjum: Íslenskt – gjörið svo vel!


Svæði

Vörumerking ehf.  |  Suðurhraun 6a  |  210 Garðabæ  |  Sími: +354 414 2500  |  Fax: +354 575 8001  |  vorumerking@vorumerking.is