Fréttir

Jafnlaunastefna Vörumerkingar

                                             Stefna 2023-2026

Krafan um að allt starfsfólk á vinnumarkaði án tillits til kynferðis, uppruna eða annarra þátta sem ekki varða hæfni launafólks eða verðmæti vinnuframlags þess er ein af grundvallarkröfum samfélagsins. Í Vörumerkingu eiga allir að njóta mannréttinda, virðingar og jöfnuðar. Starfsfólk skal metið að verðleikum og stuðlað að því að sem flestir einstaklingar nýti hæfni sína og þekkingu sem best, allt við hæfi hvers og eins. Jafnréttisstefna Vörumerkingar er unnin eftir ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 https://www.althingi.is/lagas/nuna/2020150.html þar sem m.a. kemur fram að gæta skuli jafnréttissjónarmiða og vinna að kynjasamþættingu. Tekið skal mið af þessu ákvæði við stefnumótun, ákvarðanatöku og áætlanagerð. Í jafnréttisáætluninni eru sett fram markmið og aðgerðir sem lúta að ákvæðum jafnréttislaga. Hluti áætlunarinnar er einnig stefna og viðbragðsáætlun Vörumerkingar vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni, ofbeldis eða annarrar ótilhlýðilegrar hegðunar og viðverustefna.


Svæði

Vörumerking ehf.  |  Suðurhraun 6a  |  210 Garðabæ  |  Sími: +354 414 2500  |  Fax: +354 575 8001  |  vorumerking@vorumerking.is