Fréttir

Tilkynning vegna COVID - 19 veirunnar

Starfsfólk Vörumerkingar hefur fundað vegna þeirrar fordæmalausrar stöðu sem upp er komin. 

Viðbragðsáætlun hefur verið gerð og þessi skilaboð eru það sem við biðjum viðskiptavini og gesti að virða.

Kæru viðskiptavinir og gestir.

Við í Vörumerkingu erum ábyrgt matvælafyrirtæki og vinnum með umbúðir undir matvæli.

Í dag eru aðstæður í heiminum án fordæma vegna smithættu COVID-19 veirunnar og viljum við því biðja ykkur um að virða eftirfarandi almennar leiðbeiningar Landlæknis.

  • Gæta fyllsta hreinlætis
  • Hósta og hnerra í krepptan olnboga eða í pappír. Muna að henda pappír.
  • Forðast náið samneyti við fólk sem er með hita, kvef eða flensueinkenni
  • Gæta hreinlætis og forðast snertingu við andlit. Augu, nef og munn
  • Varast snertifleti á fjölförnum stöðum svo sem handrið, lyftuhnappa,  snertiskjái, greiðsluposa og hurðarhúna

Húsreglurnar okkar til að minnka áhættu eru:

  • Allar heimsóknir viðskiptavina til sölumanna eru tímabundið bannaðar. Bendum á síma eða rafræn samskipti
  • Allar heimsóknir sölumanna til viðskiptavina eru tímabundið bannaðar. Bendum á síma eða rafræn samskipti
  • Utanaðkomandi bílstjórar eru beðnir að koma ekki inn í fyrirtækið að óþörfu
  • Forðumst alla óþarfa umgengni. Höldum fjarlægð milli okkar í samskiptum
  • Hjálpumst að og bendum á hvað má betur fara.
  • Heilsum frekar með brosi en handabandi (eða faðmlagi)

Svæði

Vörumerking ehf.  |  Suðurhraun 6a  |  210 Garðabæ  |  Sími: +354 414 2500  |  Fax: +354 575 8001  |  vorumerking@vorumerking.is